Paul Ramses

Katrín Theodórsdóttir, lögmaður, skilar inn kæru vegna...Svör við athugasemdum Útlendingastofnunar vegna máls Paul Ramses eru nú hjá Dómsmálaráðuneyti. Lögmaður Ramses vonast eftir skjótri málsmeðferð.

Það væri óskandi að hann fengi dvalarleyfi hér á landi og einnig konan hans svo þessi fjölskylda gæti sameinast á ný.


mbl.is Mál Ramses í höndum ráðuneytisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé enga ástæðu til að þessi fjölskylda sameinist hér. Þau voru bæði ólögleg í landinu. Ég legg til að þessi fjölskylda sameinist í Svíþjóð þar sem konan hefur dvalarleyfi. Þetta mál er skólabókardæmi um storm í vatnsglasi sem við Íslendingar virðumst vera sérfræðingar í.

Leir 25.7.2008 kl. 23:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég tel að þau eigi að sameinast á Íslandi vegna þess að Paul Ramses á hér mikið af kunningjum og vinum frá því að hann starfaði með okkar fólki við hjálparstörf í Afríku á sínum tíma.  Því finnst honum að af öllum þjóðum tengist hann Íslandi best.

Jakob Falur Kristinsson, 26.7.2008 kl. 07:44

3 identicon

Ef spurningin snýst um hvar flestu kunningjarnir búa þá skiptir engu máli hvar þessi maður kemur til með að búa. Hann á greinilega auðvelt með að kynnast fólki. Best væri ef hann færi aftur heim til sín. Ástandið þar er mun betra en haldið hefur verið fram. Það eru þúsundir Pálar Ramsesar sem eru tilbúnir að setjast hér að. Ef hann fær einhverja sérstaka meðferð, eiga hinir rétt á því líka. Það verður að hafa í huga að hvert mál sem yfirvöld afgreiða, búa til fordæmi fyrir þann næsta.

Leir 26.7.2008 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband