Tólf ættliðir

Þær Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Pálína Hjaltadóttir, Magnea... Það er sérstakt að sitja á spjalli með mæðgunum í Bæ í Árneshreppi á Ströndum og hugsa til þess að tólfti ættliðurinn undir þessu sama fjalli, að minnsta kosti, kom í heiminn í ársbyrjun.

Það munaði ekki um það bara tólf ættliðir búið á sama bænum og er ekkert á förum.  Þetta er dugnaðarfólk enda Vestfirðingar.  Þetta mun vera fámennasta sveitarfélag landsins.  En fólki líður vel þarna og er það gott.  Í Árneshreppi býr líka Illugi Jökulsson og hans fjölskylda og hefur Illugi verið duglegur við að auglýsa þetta litla góða samfélag.


mbl.is Tólf ættliðir undir sama fjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Er það ekki Hrafn frekar en Illugi sem býr á Finnbogastöðum?

Haraldur Bjarnason, 28.7.2008 kl. 08:42

2 identicon

Það mun vera Hrafn sem býr í Finnbogastaðaskóla þar sem konan hans er skólastjóri :) .  Þeir bræður Hrafn og Illugi eru svosem náskyldir svo það er ekki hundrað í hættunni hvor þeirra er nefndur... :)

H. Vilberg 28.7.2008 kl. 09:33

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að lesa svona Jakob minn.  Yljar manni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.7.2008 kl. 10:12

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt hjá þér Haraldur að þetta er Hrafn sem býr þarna.  En hinsvegar er leitt til þess að vita að þetta litla fallega samfélag er í stórhættu og spáð að öll byggð leggist þarna af innan 5 ára.  Byggðastofnun er a.m.k. búin að gefa út skýrslum og þar er þessu spáð ásamt flestum byggðalögum á Vestjörðum þó held ég að þeir telki möguleika til þess að byggð verði á Ísafirði lengur ennæstu 5-10 ár, en hinum er öllum spáð eyðingu.  Það er eins og ríkisstjórninni sé nákvæmlega sama um landsbyggðina sérstaklega Vestfirði.

Jakob Falur Kristinsson, 28.7.2008 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband