Jarðarför

Þá er búið að jaðarsetja mína fyrrverandi tengdamóður.  Athöfnin fór frá í Fossvogskapellu og var gerð í kyrrþey að ósk hinnar látnu.  Þá hefur hún loksins fengið hvíldina blessuð gamla konan.  Hún var elst af 6 systkinum og lifði þau öll og þótt við hefðum oft ekki átt skap saman fyrirgefst allt slíkt á svona stundum.  Það var ekki rétt hjá mér sem ég sagði í gær að hún hefði lifað afmælisdaginn sinn þann 1. ágúst, því hún andaðist þann 29. júlí en hefði orðið 91 árs 1. ágúst. 

Síðan var öllum kirkjugestum boðið í kaffi á heimili hennar að Skálagerði 5 og sat ég þar og drakk kaffi og tróð í mig svo mikið af kökum og öðrum kræsingum að ég gat varla staðið upp á eftir.  Enda þurfti ég ekkert að borða þegar ég kom heim og maturinn sem hafði verið settur inn til mín í hádeginu fór beint í ísskápinn og ég borða hann kannski í dag eða á morgun, því ég er enn saddur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Gott hjá þér að borða hressilega þegar veitingar eru ókeypis en án gríns þá er það mjög gott að allt fór vel.

Gangi þér vel.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 9.8.2008 kl. 17:43

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir Rósa mín.

Jakob Falur Kristinsson, 9.8.2008 kl. 21:51

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innlitskvitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband