Íslensk eymd

Íslenska eymdarvísitalan (e. misery index) mælist nú 16,7%. Er mælikvarðinn á eymdina fundinn út, með því að leggja saman verðbólgustigið upp á 13,6% og atvinnuleysi upp á 3,1%.

Flest er nú til ég hafði ekki hugmynd um að þessi vísitala væri til.  Við erum núna komin í hóp þjóða í Suður-Ameríku, en þar er eymd mest í Venesúela og fyrrum austantjalds þjóða.  Það skal tekið fram að Afríka var ekki tekinn með í þessari mælingu.

Ætli ríkisstjórn Íslands sé ekki stolt af þessum félagsskap.  Kannski fáum við nokkur atkvæði þarna við framboð okkar til Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna.


mbl.is Íslensk eymd mælist 16,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Áður en þú ferð að slá þessum samanburði á föstu ættir þú kannski að telja hvað margir Íslendingar sækja lífsviðurværi sitt á ruslahaugana.

Ragnhildur Kolka, 10.8.2008 kl. 10:48

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég veit ekki hvort svona könnun er marktæk, en hitt þekki ég af eigin raun biðraðirnar hjá Fjölskylduhjálpinni, Mæðrastyrksnefnd, Rauða-krossinum og Hjálparstofnun kirkjunnar.  Þangað hef ég oft þurft að leita bæði með mat og fatnað.  Þess vegna veit ég að það er mikil fátækt og eymd á Íslandi í dag.  Það er bara ekki viðurkennt opinberlega og við sem þurfum að leita til þessara stofnanna eru oft kölluð aumingjar, alkahólistar og margt fleira.

Jakob Falur Kristinsson, 10.8.2008 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband