Eric Clapton

Eric Clapton í Egilshöll á föstudag.Margir hafa kvartað yfir miklum hita og loftleysi í Egilshöll á tónleikum gítarhetjunnar Erics Claptons liðið föstudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fór hitinn upp í 29 gráður í húsinu og þótti mörgum loftræsting alls ekki fullnægjandi.

Hitinn fór sem sagt í 29 stig þarna inni og mun ástæðan hafa verið sú að loftræsting var ekki keyrð á fullu nema af og til vegna hávaða í henni.  Ekki hefði ég viljað vera þarna inni.


mbl.is Kæfandi hiti á Clapton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var allt í lagi. og eftir að hurðirnar voru opnaðar þá kom kaldur gustur inn. bara næs.

thora gunnarsdottir 11.8.2008 kl. 09:09

2 identicon

Þetta var ekki í lagi, það var ömurleg loftræsting sem eyðilagði tónleikana fyrir mörgum t.d leið yfir eina fyrir framan okkur :) voða gaman hjá henni, svo var ekki hægt að kaupa sér vatn eða bjór með góðu móti heldur var búið að stilla tveimur börum upp á sitthvorri hliðinni og það tók 40 min að kaupa sér bjór eða vatn það er bara helmingurinn af tónleikunum. þetta eru engin geimvísindi að halda tónleika en þessir tónleikahaldarar eru ekki menn í þetta.

svo sá maður hljómsveitina verða svo þreytta og nærmynd af Eric á skjánum að leka niður af svita :)

Gunnar 11.8.2008 kl. 09:59

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég var nú þarna, víst var loftlaust og heitt á tímabili, en þegar ég fór reiknaði ég ekki með öðru satt að segja bjóst ég ekki við því að þar sem 12.000 manns eru samankomin séu einhver rosaleg þægindi.

Jóhann Elíasson, 11.8.2008 kl. 10:00

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það segir nú í fréttinni að ekki hafi verið hægt að opna út, vegna þess að þá hefði birtan á sviðinu farið úr skorum.

Jakob Falur Kristinsson, 11.8.2008 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband