Afsökunarbeiðni

Ég ætla hér með að biðja mína vinnuveitendur afsökunar á því að hafa verið að skrifa um mína vinnu hér á síðunni.  Ég gerði mér ekki grein fyrir að með skrifum mínum væri ég að brjóta trúnað þeirra.  Því allt sem ég geri í vinnunni er trúnaðarmál og átti aldrei að fara inn á mína síðu.  Þetta voru mín mistök sem erfitt er að bæta úr.  Þetta hefur birst og valdið þeim óþægindum, sem mér þykir leitt og vona að ekki verði meira mál úr þessu en orðið er.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég man bara ekkert hvar þú vinnur, þetta hefur farið fram hjá mér. Vona að allt verði í lagi.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 14:25

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob minn.

Þín bíður tölvubréf frá mér.

Vona að þetta leysist allt.

Vertu Guði falinn.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 11.8.2008 kl. 14:42

3 Smámynd: egvania

Sæll Jakob, ég man ekki hvar þú vinnur og get þess vegna ekki sagt neitt um það.

Gangi þér vel

Kveðja Ásgerður

egvania, 11.8.2008 kl. 20:16

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já vonandi fer þetta allt vel að lokum, þótt ég efist um það.

Jakob Falur Kristinsson, 12.8.2008 kl. 01:36

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Mig rámar í að þú hafir eitthvað skrifað um vinnuna þína en ekkert hvar þú værir að vinna. Þannig að atvinnurekendur geta alveg verið áhyggjulausir vegna skrifa þinna. Vona að þeim farnist vel með sitt fyrirtæki.

Guð blessi þig og varðveiti.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.8.2008 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband