Kaupa DV

 Útgáfufélagið Birtingur ehf. keypti í dag dagblaðið DV og vefsvæðið DV.is af Dagblaðinu Vísi útgáfufélagi ehf. Þetta kemur fram á fréttavef DV. Birtingur gefur út tímarit, þar á meðal Séð og Heyrt, Vikuna, Gestgjafann, Golfblaðið, Hús og híbýli, Mannlíf og Nýtt líf.

Á þetta félag Birtingur ehf. ekki nóg með að halda hinum blöðunum gangandi.  Það er næsta öruggt að DV verður ekki til að létta á rekstri Birtings ehf. heldur þungur baggi.  Það eru ekki margir sem kaupa og lesa DV.  Mjög margir láta sér nægja að fá hin fríblöðin tvö þ.e. Fréttablaðið og 24 Stundir.  Svo á gamli góði Mogginn alltaf sína tryggu lesendur.  Það er vitað að rekstur DV berst í bökkum og mun víst Dagblaðið Vísir útgáfufélag ehf. sem gefur út DV ramba á barmi gjaldþrots.  Hinsvegar mun rekstur Birtings ehf. hafa gengið þokkalega, en er samt ekkert stórgróða fyrirtæki.  Þess vegna skil ég ekki þessi kaup á DV.


mbl.is Birtíngur kaupir DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Ég held að það hafi eitthvað með það að gera að það er sami stjórnarformaður hjá báðum félögum, Hreinn Loftsson, þ.e.a.s. Birtings og DV. Og þarafleiðandi eru þetta mjög líklega flaggskip Baugsmiðla, rétt á eftir Fréttablaðinu.

En eins og maðurinn sagði:

"Afhverju ættu menn svosem að setja ruslið í tvo poka, þegar það kemst fyrir í einum ?"

Ingólfur Þór Guðmundsson, 16.8.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband