Fyrsta flugið til USA

Mynd 476617Í dag eru 60 ár síðan reglulegt áætlunarflug á vegum Icelandair hófst milli Íslands og Bandaríkjanna. Fyrsta flugið var farið 26. ágúst 1948.

Þennan dag fengu Loftleiðir leyfi til áætlunarflugs milli Íslands og Bandaríkjanna.  Meðal farþega var Steingrímur Hermannsson, sem þá var ungur námsmaður.  Loftleiðir sameinuðust síðar Flugfélagi Íslands undir heitinu Flugleiðir.  Enn í dag eru menn að deila hvort félagið hafi verið sterkara við sameininguna og flest bendir til að Loftleiðir hafi farið halloka í þessari sameiningu.


mbl.is 60 ár frá fyrstu ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob minn.

Glæsilegt hjá þeim.

Hef farið þrisvar vestur um haf. Kanada heillar mig en ekki Bandaríkin.

Ert þú ekki bráðum að skella þér en í aðra átt?

Hefur þú skoðað pistilinn minn um bróðir Clifford?

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.8.2008 kl. 18:16

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú Rósa ég ætla í haust til New York að heimsækja son minn sem þar býr.

Jakob Falur Kristinsson, 26.8.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband