Sjómenn

Fundur í kjaranefnd sjómanna VM félagi vélstjóra og málmtćknimanna sér fram á alvarlegt ástand í mönnunarmálum og harđar deilur vegna olíukostnađar skipa. Ţetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Ţađ kemur einnig fram í fréttinni ađ vöntun er á sjómönnum međ réttindi, bćđi vélstjóra og skipstjórnarmenn.  Ţetta ţarf ekki ađ koma á óvart ţví ađsókn í slík nám eru orđin mjög lítil.  Ţeir sem eru međ full vélstjórnarréttindi fá mun betur launađa vinnu í landi.  Nánast enginn tekur farmannapróf, ţví engin flutningaskip eru skráđ hér á landi lengur.  Ţeir sem ćtla ađ starfa á slíkum skipum verđa ţví ađ sćtta sig viđ ţau launakjör sem eru í gildi ţar sem viđkomandi skip er skráđ og yfirleitt eru ţau mun lakari en gilda hér á landi.  Auk ţess missa sjómenn á fragtskipum og sigla undir erlendum fána margvísleg réttindi úr almannatryggingarkerfinu.  Ţeir einu sem enn starfa á kaupskipum í eigu íslendinga en eru skráđ erlendis, eru orđnir gamlir menn sem brátt verđa ađ hćtta sökum aldurs.  Ţá eru engir til ađ taka viđ.  T.d. ég er međ bćđi skipstjórnarréttindi og vélstjórnarréttindi en gengur illa ađ fá ţau endurnýjuđ ţar sem ég er 75% öryrki.  Ţótt ég fái ţau endurnýjuđ dettur mér ekki í hug ađ fara á sjó, ţví ég fć mikiđ betri laun sem bókari í landi en ég er menntađur á ţví sviđi líka.  Stjórnvöld hafa veriđ algerlega sofandi gagnvart ţessu vandamáli.


mbl.is VM: Gengur illa ađ fá sjómenn međ réttindi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband