IKEA

Mynd 449010Vörur Ikea hækka um 20% að jafnaði með nýjum vörulista verslunarinnar sem út kom í mánuðinum. Vörur hækka þó mjög mismikið og að sögn Þórarins H. Ævarssonar, framkvæmdastjóra Ikea, lækka sumar meðan aðrar hækka mikið og draga meðalhækkunina þannig upp.

Er þetta ekki sama fyrirtækið og sagði í vor að engar hækkanir yrðu fyrr en í ágúst og þá yrðu þær mjög litlar.  20% hækkun að meðaltali, er ekki lítil hækkun hún er stór hækkun.


mbl.is Ikea hækkar verð um fimmtung að meðaltali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það er varla hægt að kenna IKEA um 20% hækkun þegar verðbólga er 15% og krónan hefur veikst um 30-40% síðan síðustu verð voru ákveðin. Ef þú vilt kvarta, vil ég benda þér á ríkisstjórnina sem virðist ekki taka efnahagsvandann alvarlega.

Villi Asgeirsson, 30.8.2008 kl. 11:17

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég veit alveg að IKEA stjórnar ekki efnahagsmálum hér á landi.  Það er ríkisstjórnin og ég hef oft í mínum skrifum gagnrýnt hana fyrir aðgerðarleysi.

Jakob Falur Kristinsson, 30.8.2008 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband