Seðlabankinn

„Við erum að fara eftir stöðu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setur. Það er ekki langt síðan að gerð var úttekt á þessum málum hjá okkur og hún kom vel út,“ segir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Seðlabankans.  Hann segir gagnrýni á uppgjöri á stöðu þjóðarbúsins, sem forsvarsmenn greiningardeildar bankanna hafa sagt hafa veikt krónuna, ekki á rökum reista. Í uppgjörinu kom fram að skuldir umfram eignir þjóðarbúsins næmu um 2.100 milljörðum króna. Einnig kom fram að skekkjan væri um 180 milljarðar.

Þegar skuldir umfram eignir eru orðnar svona miklar þá skiptir engu máli  hvort skekkjan er 180 milljarðar eð einhver önnur tala.  Það sem skiptir máli er að stað þjóðarbúsins er orðin skuggalega slæm.  Samkvæmt lögum um hlutafélögum ber að lýsa þau gjaldþrota þegar eignir duga ekki fyrir skuldum.  Þess vegna hagræða mörg fyrirtæki í sínu bókhaldi til að fara framjá þessu ákvæði í lögunum.  Það er alþekkt að verðleggja birgðir hærra og færa sem eign viðskiptavild (goodwill) og fyrirtæki í sjávarútvegi færa óveiddan fisk í sjónum sem eign, þótt í lögum standi að þær auðlyndir séu sameign íslensku þjóðarinnar og afnotaréttur geti aldrei skapað eign.  Svona uppgjörum eru viðskiptabankarnir vanir.  En Seðlabankinn verður að fara eftir stöðlum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og þess vegna fær hann allt aðra útkomu en bankarnir.  Ég tel tölur frá Seðlabankanum vera réttar, því þótt ótrúlegt sé, þá eru að vinna í bankanum menn með fullu viti.

 
mbl.is Vísar gagnrýni á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband