Neyðarlán

Höfuðstöðvar bandaríska seðlabankans í New York. Bandaríska tryggingafélagið American International Group, sem er eitt stærsta tryggingafélag heims, hefur óskað eftir 40 milljarða dala neyðarláni frá seðlabanka Bandaríkjanna. Blaðið New York Times segir, að fyrirtækið geti aðeins starfað í nokkra daga fái það ekki lánið.

Mér finnst alltaf talsvert broslegt þegar fyrirtæki í landi kapitalismans fara skríðandi til ríkisins og biðja um aðstoð eftir að hafa komið sínum fyrirtækjum í stór vandræði.  Þetta eru sömu menn og eru boðberar þess að ríkið eigi ekki að skipta sér af atvinnulífinu og alltag er fasteignalánakreppunni í Bandaríkjunum kennt um taprekstur.


mbl.is Óskar eftir 40 milljarða dala neyðarláni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Það vita nú allir að ríkið á ekki að skipta sér af rekstri sem einstaklingar kunna betur."

Trúarjátning frjálshyggjumanna.

Árni Gunnarsson, 15.9.2008 kl. 09:41

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Eru þá ekki hinir sömu hæfu einstaklingar betri til að bjarga fyrirtækjum en ríkið.  Það verður ekki bæði sleppt og haldið þegar vandamálin birtast.

Jakob Falur Kristinsson, 15.9.2008 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband