Læknar

Fundi samninganefnda lækna og ríkisins lauk rétt fyrir klukkan sex án árangurs. Hefur nýr fundur verið boðaður 1. október, að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV.

það var vitað mál að eftir samninginn við ljósmæður kæmu fleiri stéttir í kjarabaráttuna og nú er komið að læknum.  Ég studdi  ljósmæður í þeirra kjarabaráttu og fannst hún sanngjörn og eins mun ég styðja lækna og fleiri stéttir sem eiga eftir að koma.  Ríkisvaldið er búið að sýna fordæmi í að allir eigi að fá kjarabætur og það skeði þegar Kjararáð úrskurðaði launahækkun til þingmanna, ráherra og allra æðstu menn þjóðarinnar og það sem meira var að hækkunin var afturvirk frá 1. maí 2008.  Ef ríkisvaldið telur að öll laun eigi að vera óbreytt ættu allir þeir sem að fengu hækkun hjá Kjararáði að afþakka þær og sýna í verki hver þeirra stefna er í kjaramálum.  En ekki á ég von á að þeir afþakki sínar hækkanir og senda þá um leið þau skilaboð til allra stétta að kjarahækkun sé réttlætanleg.  Því munu næstu mánuðir fara í kjaradeilur, sem eðlilegt er.  Nú þarf Kjararáð að koma saman aftur og meta hækkun til ljósmæðra og finna út aðra hækkun til sinna manna.  Þetta Kjararáð er réttlætt með því að þær stéttir sem hún ákveður laun fyrir geti ekki samið við ríkið og hafi ekki verkfallsrétt.   Þessu má auðveldlega breyta og allt í lagi að þessir hópar fái verkfallsrétt og Kjararáð verði samningsaðili fyrir hönd ríkisins.


mbl.is Samningafundur árangurslaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband