Flug

Mynd 473206 Fullyrt er í nýrri skýrslu alþjóðasamtaka flugvirkja að bilanir í flugvélum séu sjaldan skráðar í viðhaldsskrár þeirra fyrr en vélarnar eru á leið til heimaflugvallar eða vallar þar sem flugfélagið sem á vélina er með viðgerðaraðstöðu.

Hvað ætli valdi þessu?  Ekki trúi ég að um kæruleysi sé að ræða, frekar einhver gamall vani.  En hvað um það Flugmálstjórn verður að sjá til þess að þessir hlutir séu í lagi hér á landi.


mbl.is Vélarbilanir sjaldan skráðar samstundis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jakob, oft er það þannig að þó að bilun komi upp í flugvélum þá mega þær halda áfram að fljúga einhvern ákveðinn tíma. Þetta sjá flugmenn með því að fara í svokallaðann minimum equipment list (MEL).

  Það er listi yfir bilanir þær bilanir sem er talið að ógni ekki öryggi flugvéla, þó að þær haldi áfram flugi. Sá listi er oft hafður strangari hjá flugfélögunum sjálfum heldur en frá framleiðanda.  Það kann að vera að flugmenn skrái þær bilanir niður frekar á heimleiðinni, ég kann ekki alveg deili á því. En það er náttúrulega þannig að á þessum erfiðu tímum þá er verið að reyna að spara í öllu sviðum.  Það er mun ódýrara að nota flugvirkja síns eigins félags í heimahöfn heldur en annarsstaðar.

                                              Kveðja, Fáfnir Árnason.

Fáfnir Árnason 22.9.2008 kl. 12:33

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

En sparnaðurinn má þá ekki koma niður á öryggi í flugi.

Jakob Falur Kristinsson, 22.9.2008 kl. 16:40

3 Smámynd: Ómar Ingi

Ljótt er ef satt er

Ómar Ingi, 22.9.2008 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband