Landbúnaður

Framkvæmdir í Kópavogi Gríðarlega hefur dregið úr sölu á vinnuvélum og tækjum í landbúnaðargeiranum að undanförnu. Hið sama má segja um byggingar í landbúnaði og tala sumir forsvarsmanna fyrirtækja í geiranum um að viðskipti nálgist alkul.

Hvað er alkul? Veit það einhver?, ég hef aldrei heyrt þetta orð áður.


mbl.is Að nálgast alkul í byggingaframkvæmdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem vélstjóri ættirðu nú að hafa heyrt þetta orð í kælitækninni...-273°c eða þar um bil minnir mig. Svo mikill kuldi að allar sameindir hætta að hreyfast......

Einar Kr 26.9.2008 kl. 09:55

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll. Er það ekki mesta mælanlega frost og  mælt á skuggahlið tunglsins. -273 eða -283 °c man það ekki alveg  Ég hef stundum heyrt þetta nefnt og þá í sambandi við tilfinningar sérstaklega þegar þær hafa verið mjög heitar áður..  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 26.9.2008 kl. 17:36

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, alltaf er hun Kolla funheita á tilfinninganótunum enda ein sú alflottasta í FF!

En hann Einar er líka búin að svara þessu, mælistig lofts í mínus það mikið að líf getur ekki þrifist eða myndast.

Magnús Geir Guðmundsson, 26.9.2008 kl. 19:42

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það má vel vera að þetta orð hafi komið fyrir í kælitækninni í Vélskólanum.  En hvernig á ég að muna eitthvað sem ég lærði fyrir um 100 árum.  En þegar þú segir þetta þá man ég eftir því að þetta á við um svo mikinn kulda að sameindirnar hætta að hreyfast.

Jakob Falur Kristinsson, 27.9.2008 kl. 07:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband