Hvernig gat þetta skeð?

Fyrir stuttu síðan var hér allt í blóma og bankarnir yfirfullir af peningum en á einni nóttu breyttist allt og bankarnir nánast gjaldþrota og eru nú þjóðnýttir hver eftir annan.  Við sem með okkar útrásarvíkinga áttum orðið hálfan heiminn og ekkert virtist geta stöðvað okkur.  Við kunnum allt best og keyptum fyrirtæki erlendis og á nokkrum dögum var rekstri þeirra snúið úr tapi í gróða.  Við sáum allstaðar tækifæri sem erlendir bjánar sáu ekki og nýttum þau.  En nú virðist að allt þetta hafi verið gert með óhóflegum lántökum og undirstaðan verðlausir pappírar fór þetta eins og það fór.  Íslensku bönkunum tókst að skuldsetja sig fyrir um 17 faldri þjóðarframleiðslu og í samræmi við það varð að greiða þessum hetjum gríðarleg laun.  Þegar lánin tóku að falla í gjaldaga töldu þessar hetjur sjálfsagt að íslenskur almenningur greiddi þau en ekki bankarnir, þeir voru búnir að gera sitt og vel það.  Þeir höfðu smalað almenningi inn í bankanna til að taka lán og báru auðvitað enga ábyrgð þótt ekki væri hægt að greiða af þeim lánum sem þeir höfðu tekið.

Getur verið að þessir snillingar hafi aldrei lært hvað orðið gjalddagi þýðir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband