Auður

Áhættumeðvitund gerði það að verkum að verðbréfafyrirtækið Auður Capital stendur vel nú þegar fjármálakreppa ríður yfir heiminn. Þetta segir Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar, og bendir á að fyrirtækið hafi ekki verið skuldsett heldur einungis verið með eigið fé.

Þetta er gott dæmi um hvað fyrirtæki sem er stjórnað af konu stendur sig betur en allt karlaveldið í hinum bönkunum, sem hafa ólmast eins og naut í flagi og skuldsett sín fyrirtæki upp úr öllu valdi.


mbl.is Áhættumeðvitund varð til þess að Auður stendur vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Árrni Mathiesen skríður nú á fjórum fótum fyrir Alþjóða gjalaeyrirssjóðnum og biður um svipuna. Ísland er gjaldþrota, einfalt mál.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.10.2008 kl. 08:14

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Íslensk stjórnvöld þora ekki að leita til Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins, því þeir vilja ekki að allt klúðri hjá þeim og Seðlabankanum sjáist og verði gert opinbert.

Jakob Falur Kristinsson, 10.10.2008 kl. 10:17

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ég held að ef Auður Capital hefði komið inn á markaðinn fyrir 3-5 árum þá væri þetta félag i svipaðri stöðu og önnur sambærileg í dag - því tel ég að það hafi ekkert með að gera hvort það eru strákar eða stelpur sem koma að þessum rekstri

Jón Snæbjörnsson, 12.10.2008 kl. 21:39

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er nú þekkt staðreynd að konur eru miklu gætnari í fjármálum en karlar.

Jakob Falur Kristinsson, 13.10.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband