Íslandsbanki

Mynd 491024Á hluthafafundi Glitnis hf., nú Íslandsbanka hf. í dag, var kosið í stjórn félagsins í stað stjórnarmanna, sem nýverið hafa látið af störfum. Aðalmenn eru Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Martha Eiríksdóttir, Ólafur Ísleifsson, Katrín Ólafsdóttir og Guðmundur R. Jónsson.

Nú er Glitnir hf. allt í einu aftur orðinn Íslandsbanki hf.  Á virkilega að gera eina tilraun enn með Íslandsbanka hf.  Það væri fróðlegt ef upplýst væri hvað þessir stjórnarmenn fá í laun.  Birna Einarsdóttir bankastjóri sagði í viðtali að það væru enginn ofurlaun í bankanum í dag en seinn var upplýst að hún fengi í laun kr. 1.950 þúsund á mánuði eða 15 föld verkamannalaun.  Birna virðist því vera svo veruleikafyrt að hún telji þetta enginn ofurlaun.  Svo fær hún að auki bíl til afnota sem bankinn rekur.

Annars skil ég ekki til hvers ríkið er að reka 3 banka.  Mætti ekki sameina eitthvað af þessu í sparnaðarskini.


mbl.is Stjórn Íslandsbanka hf. kjörin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Bæði þarf að sameina Íslandsbanka og Kaupþing og einnig fækka starfsfólki til muna.  Það er mikið svigrúm til hagræðingar í bönkunum og þeir eru mjög yfirmannaðir eins og stendur.  Það gengur ekki að fara reka þá með bullandi tapi en það er líkleg niðurstaða ef þeir fara ekki að hagræða í sínum rekstri.

Guðmundur Pétursson, 20.2.2009 kl. 17:53

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það á að sameina alla bankana 3 í einn og selja erlendum kröfuhöfum.  Þá fyrst sæjum við alvöru bankarekstur á Íslandi.

Jakob Falur Kristinsson, 21.2.2009 kl. 10:32

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt Sigurbjörg að samhliða þessu yrði að efla Sparisjóðina til að einhver samkeppni yrði í bankarekstri.

Jakob Falur Kristinsson, 21.2.2009 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband