Íslendingar hafðir að háði

Í grínfréttablaði, sem gefið er út um fréttir frá Wall Street í New York er gert mikið grín að Íslandi, en blaðamaðurinn segir þar;  "Ísland er gjaldþrota, krónan er ónýt, bankakerfið er óvirkt, fyrirtæki fara á hausinn í stórum stíl og atvinnuleysi er mikið landið nýtur hvergi trausts." 

Þetta er ekki fögur landkynning.  Svo eru menn að kenna hvalveiðum um að þær skemmi fyrir orðspori Íslands erlendis.  En ég spyr bara hvaða orðspori?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: egvania

 Jakob eftir því sem mér er sagt þá fara útlendingarnir á matsölustað sem er með hvalkjöt á boðstólnum og gæðir sér á því.

Ég man ekki hvað þessi staður heitir en hann er í Reykjavík

Kveðja Ásgerður

egvania, 4.3.2009 kl. 17:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Staðurinn heitir Sægreifinn og er rétt fyrir ofan þar sem hvalaskoðunarskipin liggja.  Svo það er stutt að fara úr hvalaskoðunarferð til að borða hvalkjötið.

Jakob Falur Kristinsson, 4.3.2009 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband