Laun

Margrét Sverrisdóttir kemur til landsþings Frjálslynda... Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Frjálslynda flokkinn til að greiða Margréti Sverrisdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins, 614 þúsund krónur en um er að ræða ógreidd laun.

Það er slæmt að ekki skuli hafa verið gert upp við Margréti á eðlilegan hátt og hún þurft að leita til dómstóla.  Þetta setur ljótan blett á Frjálslynda flokkinn.  Það voru mikil mistök að hleypa Jóni Magnússyni og Nýju Afli í Frjálslynda flokkinn, en það var aðalástæða þess að Margrét fór úr flokknum.  Hún flutti viðvörunarorð um þetta á síðasta landsfundi en á það var ekki hlustað.  Ef það hefði verið gert væri hún sjálfsagt enn í flokknum og þingmennirnir fleiri en nú eru.


mbl.is Frjálslyndi flokkurinn greiði Margréti laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Margrét var á sínum tíma rekin úr eigin flokk fyrir að mótmæla rasismanum sem hafði skapast í flokknum, svo er talað niður til hennar og reynt að svíkja hana um laun.

Það er alveg ljóst að ég mun ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn með Jón innanborðs, slík mannvonska hefur komið frá þeim manni að ég mun ekki eiga þátt í að koma honum á þing. 

Hilmar Gunnlaugsson, 5.3.2009 kl. 16:06

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er ekki rétt hún yfirgaf flokkinn vegna inngöngu Jóns Magnússonar og félaga hans úr Nýju Afli.  Þetta sagði hún í ræðu á síðasta Landsþingi, sem ég sat og hlustaði á ræðuna.  Hún nefndi ALDREI rasista í þeirri ræðu..

Jakob Falur Kristinsson, 6.3.2009 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband