Þá er það ákveðið

Í morgun gekk ég frá sölu á íbúð minni hér í Sandgerði við Búmenn.  Ef ekki verður komin kaupandi að íbúðinni eftir 6 mánuði eru Búmenn skuldbundnir til að greiða mér út minn eignarhlut.  Ég er búinn að fá loforð fyrir leiguíbúð vestur á Bíldudal á góðum kjörum.  Ég stefni að því að flytja vestur í maí eða júní.  Því fátt er jafngott og sumarið á Bíldudal, alltaf logn, en hér í Sandgerði er aldrei logn.  Þess vegna þarf ég að æfa mig áður en ég flyt að anda eðlilega.  Því ef maður fer út að ganga hér í Sandgerði er nóg að opna bara munninn af og til, því alltaf er vindur, sem sér um að fylla lungun af lofti.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég var í Sandgerði sl. sumar og það kom fyrir að það væri logn.  Það er rétt að það blæs hressilega fyrir vestan núna en það er NA-átt og þá er Bíldudalur í skjóli.  Annars var sonur minn af fara vestur áðan með bát sem hann var að kaupa og fannst allt í lagi með veðrið nema þá helst yfir Faxaflóann.  Ég hætti ekkert að blogga þótt ég fari vestur.

Jakob Falur Kristinsson, 9.3.2009 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband