Ruslaralýður

Þann 1. mars var haldinn fundur í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðismanna.  Þar var verið að ræða um bankahrunið ofl.  Það var samhljóða álit fundarmanna að þótt Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið með stjórn efnahagsmála Íslands síðan 1991, bæri hann enga ábyrgð á þessu hruni.  Það var þetta fólk sem brást sagði Geir H. Haarde, formaður flokksins.  Það voru sem sagt almennir borgarar þessa lands sem brugðust, eyddu og bruðluðu með fé eins og vitleysingar.  Fólk tók húsnæðislán, bílalán, neyslulán, sumarhúsalán og annað eftir því.

Svo fór þetta sama fólk að koma sama á Austurvelli og vera þar með skrýlslæti, sem urðu til þess að ríkisstjórnin sprakk.  Samfylkingin gafst upp en ekki Sjálfstæðisflokkurinn, hann stendur alltaf fyrir sínu. 

Þá höfum við það beint frá Valhöll að hin íslenska þjóð er bara ruslarlýður, sem ekkert veit né skilur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband