Agnes segir................

Þetta er fyrirsögn á ýmsum greinum sem Agnes Bragadóttir , blaðamaður á Morgunblaðinu, notar.  Í Morgunblaðinu í morgun var hún að skrifa um skort á leiðtogum fyrir stjórnmálaflokkana.  Hún gat ekki fundið neinn sem væri sterkur leiðtogi, nema helst Bjarni Benediktsson ef hann yrði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins.  Aðra afgreiddi hún sem lítilmenni og fullyrti að enginn alvöru leiðtogi hefði komið fram síðan Davíð Oddsson var formaður Sjálfstæðisflokksins.  Að vísu viðurkenndi hún að Steingrímur J. Sigfússon hefði talsverða forustuhæfileika, en hann væri bara ekki í réttum flokki til að teljast með.

Þess skal sérstaklega getið að Agnes segist vera alveg hlutlaus í sínum skrifum og blandi pólitík þar aldrei inní og ritstjórar blaðsins skipti sér ekki af því hvað hún skrifar.  Hún segist leggja mikla rannsóknarvinnu í málin áður en hún fer að skrifa um þau.  Ef hún hefur gert það áður en hún skrifaði þessa grein gæti hún hugsanlega hafa rekist á nöfn eins og Ólafur Thors,  Bjarni Benediktsson, eldri,  Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson og Lúðvík Jósepsson ofl.  En kannski voru sumir þessara manna bara ekki í réttum flokki til að teljast með.

Eins og áður sagði er Agnes algerlega hlutlaus í sínum skrifum og blandar ekki pólitík þar inní.

Agnes segir...... Sjálfstæðisflokkurinn er ekki pólitískur flokkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband