ÍNN

Ingvi Hrafn Jónsson.Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN, segir að stöðin selji útsendingartíma á 60 þúsund krónur hálftímann fyrir utan virðisaukaskatt. Dögg Pálsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, upplýsti í gærkvöldi að hún hefði greitt ÍNN 74.700 krónur fyrir viðtal og Útvarpi Sögu 53.535 krónur, einnig fyrir viðtal.

Hann á eftir að hala inn dágóðar tekjur á þessu hann Ingvi Hrafn Jónsson.

Ég horfi stundum á þessa stöð og annan eins pólitískan áróður hef ég hvergi séð í opinberum fjölmiðlum.  Þarna kemur stundum saman svokölluð "Heimastjórn,"sem í eiga sæti Ingvi Hrafn, Hallur Hallsson, Ármann Ólafsson alþm. og Jón Snæhólm.  Reyndar er Ingvi ekki alltaf viðstaddur heldur er rætt við hann í gegnum gervihnött þegar hann er að baða sig í sólinni á Flórída, en þar dvelur hann hluta úr árinu.  Það sem þessir menn gera er að níða niður þá aðila sem ekki eru sjálfstæðismenn.   Þarna er líka svokallað "Hrafnaþing", en þá er það Ingvi Hrafn að ryðja út úr sér skömmum og svívirðingum yfir þá sem eru honum ekki að skapi.

Þannig að ég tel að frambjóðendur annarra flokka en Sjálfstæðisflokkinn munu lítið nota sér þessa þjónustu.

ÍNN er áróðursmaskína Sjálfstæðisfkokksins


mbl.is ÍNN selur útsendingartíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband