Vaxtalækkun

Guðjón Arnar Kristjánsson. Frjálslyndi flokkurinn telur að tafarlaus og mikil lækkun stýrivaxta nú sé beinlínis lífsnauðsynleg fyrir fjárhag heimila og lykilatriði fyrir endurreisn atvinnulífs í landinu. Flokkurinn telur að lækka eigi stýrivexti tafarlaust niður í 8% og lækka þá síðar eftir því sem unnt reynist. Ennfremur eigi að frysta allar vísitölur í þrjú ár og nýta tímann til að undirbúa afnám verðtryggingar.

Það er fyrir löngu orðið tímabært að lækka stýrivexti Seðlabankans.  Þeir ættu að fara niður í a.m.k. 6% ef ekki neðar.  Núverandi vextir eru að ganga frá atvinnulífinu dauðu og sá skaði verður seint bættur.  Mér líst vel á þessar hugmyndi að frysta vísitöluna og miða við 5%, sú leið er alla veganna betri en tillögur um flatan niðurskurð um 20% af öllum skuldum, hvort sem fólk þarf á því að halda eða ekki.  Svo ætlar Tryggvi Þór Herbertsson að telja fólki trú um að það kosti ekki krónu.  Eitthvað hefur nú slegið út í hausnum á honum.


mbl.is Vaxtalækkun lífsnauðsynleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband