DA-Samtökin

Mynd 493898DA-samtökin, Debtors Anonymous eða nafnlausir skuldarar, efna til kynningar á starfsemi samtakanna í næstu viku. DA-samtökin hafa starfað í nokkur ár en þau byggja á 12 spora kerfi líkt og AA-samtökin. Þeir sem leita aðstoðar hjá DA-samtökunum eru oft mjög djúpt sokknir í skuldafen og finnst að lifið sé orðið óviðráðanlegt.

Þetta lýst mér mjög vel á og mun örugglega hjálpa mörgum.  En það er alveg það sama með þennan vanda og ágengisvandamálin hjá mörgum að árangur næst ekki nema fullur vilji sé fyrir hendi.  Ég þekki þetta mjög vel því ég hafði farið í 4 áfengismeðferðir á jafn mörgum stöðum, sem litlu skiluðu.  En svo ákvað ég bara einn daginn að nú væri komin nóg og hætti að smakka vín.  Verða í vor komin 3 ár síðan ég hætti einn og óstuddur.  Það hefur að vísu komið fyrir 1-2 tilfelli sem ég hef fallið en þá stendur maður bara sterkari upp aftur og er enn ákveðnari.


mbl.is Gegn skuldasöfnunaráráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband