Margrét Sverrisdóttir

Margrét Sverrisdóttir á landsfundi Samfylkingarinnar. Margrét Sverrisdóttir hlaut flest atkvæði í kjöri til framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins. Kosið var milli 25 frambjóðenda í 6 sæti aðalfulltrúa og 6 fulltrúa til vara.

Það er alltaf að koma betur í ljós hvað það voru mikil mistök að hrekja Margréti úr Frjálslynda flokknum.  Sá sem stóð fyrir því var Jón Magnússon, sem nú er gengin í Sjálfstæðisflokkinn.  Hann fór þar í prófkjör en náði engum árangri, en þó nokkrir hafa sagt að þeir kjósi ekki Sjálfstæðisflokkinn á meðan Jón Magnússon er þar.  Hann er því að vissu leiti ábyrgur fyrir fylgishruni Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Margrét Sverrisdóttir í framkvæmdastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jakob.

Má ég benda þér á að Margrét sagði sig úr Frjálslynda flokknum eftir að hafa tapað varaformannskjöri fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni, og því all langsótt skýring að finna þar eitthvað annað en ákvörðun Margrétar í þvi efni.

Skömmu áður hafði Margrét ráðist að forystu flokksins og þingmönnum, i ræðu og riti sem starfandi framkvæmdastjóri flokksins, en það var áður en Jón Magnússon var kjörinn þingmaður þess flokks.

Þetta veit ég vel um Jakob frá a-ö.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.3.2009 kl. 01:38

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Tapið um embætti varaformanns var ekki ástæðan, heldur sagði hún að hún vildi ekki fá Jón Magnússon og Nýtt Afl inn í flokkinn.  Ég hlustaði á hennar ræðu á þessum fræga landsfundi á Hótel Loftleiðum og hún var haldinn fyrir varaformannskjörið.

Jakob Falur Kristinsson, 30.3.2009 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband