Auðjöfrar

Hvert fóru fjármunirnir?Breska dagblaðið Daily Telegraph birtir í dag umfjöllun um rannsókn á íslenska bankahruninu. Í greininni segir að helstu auðjöfrar landsins hafi ekki sést á götum Reykjavíkur að undanförnu, haft eftir Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, að margt sé líkt með bönkunum og Enron og vitnað í Evu Joly.

Auðvitað eru þessir menn ekkert að spóka sig á götum Reykjavíkur þessa daganna.  Þeir eru allir fyrir löngu farnir úr landi til að fela sína peninga.  Það eru þessir peningar sem Eva Joly ætlar að finna of sækja fyrir íslenska þjóð og henni mun takast það.Þegar allir þeir fjármunir sem Eva Joly mun ná í, mun ekki mikið verða eftir af fjárlagahallanum hjá ríkissjóði. 


mbl.is Auðjöfrar landsins sjást ekki á götum Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessir menn hafa vanhelgað fósturjörðina og eiga því að gista annars staðar.

Kolla 13.4.2009 kl. 11:53

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Enda gera þeir það.

Jakob Falur Kristinsson, 13.4.2009 kl. 15:05

3 Smámynd: Hlédís

ÞS renndi sér á röðina af bloggum með frétt um látinn mann.

Hlédís, 13.4.2009 kl. 19:08

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað áttu við Hlédís?

Jakob Falur Kristinsson, 14.4.2009 kl. 10:20

5 Smámynd: Hlédís

Jakob Falur!

Þrymur Sveins setti inn tengingu á nýja frétt um andlát við alla pistlatengda þessari frétt. Fyrirgefðu hve þetta var óljóst hjá mér - jafnvel að kommenteraði yfirleitt á ÞS!

Hlédís, 14.4.2009 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband