Kúba

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði á leiðtogafundi Ameríkuríkja í Trinidad í dag, að stefna bandarískra stjórnvalda gagnvart Kúbu hefði ekki virkað. Hins vegar yrði stefnunni ekki breytt í bráð. Ekki náðist samstaða um lokayfirlýsingu fundarins, sem leiðtogar 34 ríkja sátu.

Barack Obama verður að gera allt sem hann getur til að samskipti Bandaríkjanna og Kúbu verði eðlileg á ný.  Hann má ekki falla í sömu gryfju og margir forverar hans að vanmeta Kúbu.  Ferðafrelsi á milli landanna væri lámark.  Það þarf að koma því þannig fyrir að Kúba verði með þegar þjóðir Ameríku funda saman.


mbl.is Obama: Kúbustefna hefur ekki virkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg er drepfyndið þegar USA tala um mannréttindabrot annara þjóða.

„Málefni pólitískra fanga, málfrelsi og lýðræði eru mikilvæg og þeim er ekki hægt að víkja til hliðar," sagði Obama í lok fundarins. Hann sagði á föstudag að hann væri reiðubúinn til viðræðna við stjórnvöld á Kúbu.

Gilli 19.4.2009 kl. 19:37

2 Smámynd: Helgi Kr. Sigmundsson

Ég er sammála þér Jakob og það væri óskandi að þetta gengi eftir.  Það er jákvætt að Obama er tilbúinn til viðræðna og það er upphafið.  Það er löngu tímabært að endurskoða þessa einangrun sem Kúba hefur orðið að búa við.

Helgi Kr. Sigmundsson, 19.4.2009 kl. 20:38

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég tek undir það að vonandi verður Obama eitthvað ágengt, því núverandi ástand er óþolandi.  Það búa margir í Bandaríkjunum, sem eru ættaðir frá Kúbu og núverandi ástand gerir þeim ekki kleyft að heimsækja sína ættingja á Kúbu.  Að samskipti ríkja séu með þessum hætti á 21. öld er óþolandi.

Jakob Falur Kristinsson, 20.4.2009 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband