Samkeppni

Útgjöld til velferðarmála hafa hækkað um þrjú prósent frá aldamótum. Á sama tíma hafi önnur útgjöld ríkisins aukist um sextíu prósent. Forsætisráðherra vill hagræða í ríkisrekstri, forgangsraða og sameina ráðuneyti. Óvönduð stjórnsýsla, og pólitísk afskipti hamla samkeppnishæfni að hennar mati.

Rétt hjá Jóhönnu og áfram nú.


mbl.is Pólitísk afskipti hamla samkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta voru nú ekki aðalatriðin í ræðunni...

Jóhanna talaði mest um nauðsyn þess að ganga í Evrópusambandið. Og - mikilvægt - hún lofaði hagsmunahópum sjávarútvegs og landbúnaðar að hafa fullt samráð við þá í aðildarviðræðum.

Þetta var glæsilegt! - að sjá Jóhönnu Sigurðardóttur taka þessa kapítalista á beinið og segja þeim að eina leiðin til að tryggja hag þeirra fyrirtækja sé að ganga í Evrópusambandið, les: að kjósa Samfylkinguna!

Salurinn vissi að kerlingin hefur rétt fyrir sér...

Evreka 22.4.2009 kl. 17:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt að hún ræddi einnig um ESB og voru aðrir ræðumenn henni sammála.  Þetta sýnir best hvernig hægt er að snúa stórum samtökum á borð við SA til liðs við sig í ákveðnu máli.  Því fram hefur komið að yfir 70% af félögum eru hlynntir aðild en auðvitað er grátkór LÍÚ ekki sammála.  En með svona vinnubrögðum tekst þetta og ég er mjög hlynntur því að við sækjum um aðild að ESB og tökum upp evru.

Jakob Falur Kristinsson, 23.4.2009 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband