Niðurgreiðir meðferðir

Verkalýðsfélagið á Húsavík ætlar að niðurgreiða Detox meðferðir hjá sínum félagsmönnum.  Upphæðin er kr: 40.000,- á mann.  Ekki veit ég hvað þessi meðferð kostar en hún er mjög umdeild á meðal lækna.  Það mun vera Jónína Benediktsdóttir sem sér um þessar meðferðir.  Þetta fór áður fram í Póllandi en nú er Jónína að flytja þetta til Íslands og í Mývatnssveitina.

Ég hefði haldið að gáfulegra væri að niðurgreiða eðlilega heilbrigðisþjónustu frekar en svona skottulækningar.  En Jónína er slyng að kjafta sig inn á menn og Aðalsteinn hefur fallið kylliflatur fyrir þessum töfralausnum Jónínu Benediktsdóttur.


mbl.is Niðurgreiðir Detox meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega, maður spyr sig hvaða samráð voru á milli forystu verkalýðsfélagsins og þeirra sem græða mest á þessari meðferð. Og líka hvaða rök liggja að baki að þessi tiltekna meðferð sé niðurgreidd en ekki t.d. meðferð sem gengur út á að borða ekkert nema slímuð hörfræ, blóðbergste og hrá fýlaegg?

Rúnar Berg Baugsson 22.5.2009 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband