Nýr framkvæmdastjóri

Nú hefur Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi verið ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.  Það mun ekki vera létt verk sem bíður hins nýja framkvæmdastjóra því fjármál Sjálfstæðisflokksins eru mjög erfið um þessar mundir og bæði á að endurgreiða styrkina frægu á 7 árum og svo eru sveitarstjórnarkosningar á næsta ári.

Það er talsvert skrýtið með endurgreiðsluna á þessum styrkjum að hvorki á að greiða af þeim vexti eða verðbætur.   Þetta ætti fólk að taka sér til fyrirmyndar og hætta að greiða vexti og verðbætur af sínum lánum.  Annars finnst mér að þarna hefði verið mjög heppilegt starf fyrir Gunnar Birgisson, bæjarstjóra í Kópavogi, sem er að hrökklast frá völdum vegna spillingar.  Gunnar hefði ekki verið lengi að koma fjármálum flokksins í lag með útgáfu á nokkrum reikningum til fyrirtækja og krafist greiðslu.  Gunnar er einmitt nægjanlega ósvífinn til að gegna þessu starfi.


mbl.is Jónmundur framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Sem gamall Kópavogsbúi sem hefur miklar taugar til Kópavogs, þá spyr ég þig! -

Ertu að segja að það eigi að rannsaka Klæðningu og byggingafyrirtæki Gunnars I. Birgissonar líka?

 -  Afþví að þú segir að hann sé  "einmitt nægjanlega ósvífinn til að gegna þessu starfi?

Þá spyr ég líka:  Þarf þá einnig að kanna starfsferil og viðskipti Jónmundar líka?

Afþví að þú tengir þetta,  við frétt um ráðningu Jónmundar í starf framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.6.2009 kl. 18:26

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Miðað við hvernig staðið hefur verið að fjáröflun fyrir Sjálfstæðisflokkinn undanfarin ár, þar nægilega ósvífinn mann í þetta starf.  Auðvitað á að rannsaka viðskipti Kópavogsbæjar við Klæðningu á meðan það fyrirtæki var í eigu Gunnars.

Hvað varðar Jónmund þá þar ekkert að rannsaka hans störf því ekkert hefur komið upp sem gera hans störf tortryggileg.

Þar sem þú berð miklar taugar til Kópavogs hlýtur þú að vilja að öll stjórnsýsla þar sé eðlileg og hafinn yfir allan vafa um misnotkun á fé bæjarins.

Jakob Falur Kristinsson, 14.6.2009 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband