Frestun

Nú hefur verið frestað um óákveðin tíma ákveðnum vegaframkvæmdum sem búið var að bjóða út.  Frestunin tengis víst niðurskurði í útgjöldum ríkisins, sem nú er unnið að.

Ég ætla að vona að það verði ekki með þessar framkvæmdir eins og ákveðnar vegaframkvæmdir á Vestfjörðum.  Þeim var fyrst frestað vegna mikillar þenslu og síðar vegna kreppu.  Ég hefði talið að í kreppu ætti ríkið að fara í allar þær framkvæmdir sem hugsast getur en draga úr í þenslu.

Það er alltaf verið að tala um nauðsyn þess að brúa einhvern halla á fjárlögum, en er ekki allt í lagi að vera með mikinn fjárlagahalla í mikilli kreppu ef einhver vill lána okkur fyrir hallanum.  Þetta gera Bandaríkin ár eftir ár.


mbl.is Hætt við vegagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður verður allur niðurskurður óvinsæll, hvað sem menn kveina þegar skattar hækka og heimta niðurskurð. Þá benda menn hver á annan og segja að frekar eigi að skera þetta niður en hitt, eða þessa þjónustuna frekar eða hina.

GH 17.6.2009 kl. 15:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er að tala um að skera EKKI niður eða hækka skatta.  Heldur bara að reka ríkissjóð áfram með þessum mikla halla.

Jakob Falur Kristinsson, 18.6.2009 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband