Hrefnan

Þá er búið að veiða 15 hrefnur af þeim 200 sem heimilt er að veiða og er það gott, því aðeins einn bátur hefur byrjað hrefnuveiðar. 

Þá er Hvalur 9 lagður af stað til að veiða langreyðar og vonandi fer Hvalur 8 af stað fljótlega.  Þessar veiðar munu skapa mörg hundruð störf, sem veitir ekki af í öllu atvinnuleysinu en svo er eftir að sjá hvort íslendingar telji sig ekki of fína í þessi störf.  Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að illa gangi að fá íslendinga til að vinna í fiski.  Þar er nefnt dæmi frá stað þar sem vantaði 4 til starfa í fiskvinnslu en enginn fékkst ótt að á staðnum væru 80 manns á atvinnuleysisskrá.


mbl.is Búið að veiða 15 hrefnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég var með Amerískan kunningja minn í mat um helgina og léttgrillaði þá hrefnu, hann sagðist aldrei hafa fengið betra kjöt svo ætlaði ég að hafa grillaða hrefnu aftur í gær þá var hún uppseld á höfuðborgarsvæðinu og flestir sem ég talaði við áttu ekki von á henni aftur fyrr en eftir helgi, megnið af þriðjudeginum fór í að fara á milli verslana og reyna að finna hrefnubita á grillið.  Ég er alveg kjaftbit því "öfgahvalverndarsinnar" segja að það borði þetta enginn

Jóhann Elíasson, 18.6.2009 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband