Krónan

Þótt krónan hafi styrkst lítillega í gær hefur hún að undanförnu verið veikari en hún hefur áður verið á árinu. Gengisvísitalan stendur nú í rúmum 237 stigum. Vonir voru bundnar við að gjaldeyrishöft, sem Seðlabankinn kom á í nóvember í fyrra, myndu leiða til styrkingar krónunnar. Það hefur ekki gengið eftir. Meðal þeirra skýringa sem sérfræðingar nefna sem ástæður þessa eru mikil vantrú á krónunni og reyndar á efnahagslífinu í heild.

Eru þessir svokallaðir sérfræðingar að uppgötva þetta fyrst núna? "En batnandi mönnum er best að lifa." segir máltækið 

Hvenær ætli það verði síðan að einhver uppgötvar að krónan er handónýtur gjaldmiðill.


mbl.is Vantrú á krónunni skýrir helst hve veik hún er
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þess vegna setur að manni hroll  þegar maður heyrir á það minnst að eigi að nota "lánið" frá AGS til að kaupa gjaldeyri og þann gjaldeyrisforða eigi að nota til að styrkja krónuna.  Ég bloggaði um þetta fyrir nokkru síðan SJÁ HÉR.  manni verður bara óglatt af hugsuninni hvað menn geta verið "heiladofnir".

Jóhann Elíasson, 23.8.2009 kl. 17:45

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála Jóhann.

Jakob Falur Kristinsson, 23.8.2009 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband