Fjárlaganefnd

Enn og aftur er Fjárlaganefnd að funda um fyrirvarna, sem setja á við Icesave-samninginn.  Eru Framsóknarmenn þeir einu, sem sjá hvað þetta er vonlaust verk.  Aðstoðarmaður fjármálaráðherra, Indriði Þorláksson, segir að bæði Bretum og Hollendingum, hafi verið kynntir þessir fyrirvarar og hafi ekkert út á þá að setja.  En hvort þeir muni samþykkja þá eða hafna ætla þeir ekki að gefa upp fyrr en Alþingi er búið að samþykkja ríkisábyrgðina á Icesave og bera því við að þeir vilji ekki trufla vinnu Fjárlaganefndar.  Þeir vita sem er að þegar Alþingi hefur samþykkt ríkisábyrgðina og þeir hafna henni, þá stendur eftir upprunalegi samningurinn, sem búið er að undirrita, óbreyttur. 

Það er því komin upp patt-staða í málinu.  Ríkisábyrgðin mun aldrei verða samþykkt á Alþingi nema að fyrir liggi að Bretar og Hollendingar gefi það upp fyrirfram að þeir samþykki fyrirvaranna.  En þeir ætla ekki að gera það fyrr en Alþingi er búið að samþykkja ríkisábyrgðina.  Þannig að málið getur farið svona hring eftir hring og ekkert gerist.

Það er því rétt sem Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknar í Fjárlaganefnd, segir;

"Það þarf að hafna þessum samningi og semja upp á nýtt."  Það er líka rétt að geta þess að ríkisábyrgð á innlánum á Icesave-reikningum Landsbanka Íslands er brot á EES-samningnum, því þá er verið að mismuna innlánseigendum.  Því ekki er ríkisábyrgð á öðrum innlánsreikningum á EES-svæðinu.  Ef Bretar og Hollendingar vilja ekki semja við okkur upp á nýtt þá er það bara þeirra mál og undirritaði samningurinn sem kveður á um lán þessara þjóða til Íslands verður þá án ríkisábyrgðar.


mbl.is Fjárlaganefnd fundar síðdegis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband