Greiðsluaðlögun

Alveg er það stórfurðulegt að það sem átti að hjálpa fólki í greiðsluerfiðleikum, komi því nú í stórvandræði eins og að lenda á Vanskilaskrá.  Sá sem óskar eftir greiðsluaðlögun og fær hana samþykkta er um leið kominn í stöðu gjaldþrota manns.  Það er skipaður tilsjónarmaður með fjármálum og viðkomandi er ekki lengur fjárráða.  Að lenda á Vanskilaskrá leiðir til þess að sá einstaklingur er settur til hliðar í kerfinu.  Viðkomandi fær ekki að hafa kreditkort, nýta sér raðgreiðslur eða að stofna til nýrra skulda, eins og að vera með yfirdráttarheimild í sínum banka.

Þegar lögin um greiðsluaðlögun voru samþykkt var það ekki ætlun löggjafans að þetta yrði framkvæmt svona.  Hins vegar geta bankar og aðrar fjármálastofnanir túlkað lögin eins og þeim sýnist.  Engu breytir þótt viðkomandi aðili hafi alltaf verið með öll sín mál í skilum í viðkomandi banka.  Ef þetta er sú skjaldborg sem átti að slá utanum heimili landsins er þetta einungis spilaborg og til þess fallin að blekkja fólk.


mbl.is Gagnrýna að fólk sé sett á vanskilaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband