Sameign

Í ályktun, sem samþykkt var á flokksráðsfundi VG á Hvolsvelli í dag, er skorað á Alþingi og ríkisstjórnina að að beita sér fyrir því að grunnnet fjarskipta verði að nýju í eigu þjóðarinnar.

Það voru flestir sammála um að við sölu á Símanum hefði verið gerð mistök að láta grunnnetið fylgja með.  Því þar með var Síminn, sem einkafyrirtæki með talsvert forskot á sína keppinauta á fjarskiptamarkaði.


mbl.is Grunnnetið á ný í eigu þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott mál að ríkið taki þetta yfir aftur.

DoctorE 29.8.2009 kl. 16:00

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já þar er ég þér sammála.

Jakob Falur Kristinsson, 29.8.2009 kl. 16:42

3 identicon

Já...

Málið er bara að nú í dag er netkerfið jafn mikilvægt og vegakerfið. Enginn heilvita maður mundi fara berjast fyrir því að láta Spöl eða einhvern taka yfir alla vegi landsins.

Grunnkerfið og utanlandstengingar eiga að vera í rekstri og eigu ríkis sem á að tryggja að það sé öruggt, öflugt og ódýrt. Svo eiga öll fyrirtæki að eiga jafnan aðgang að kerfinu.

Jón Grétar Borgþórsson 29.8.2009 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband