Bakkavör

Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, segir enn verið að skoða hagkvæmni þess að reisa hér á landi verksmiðju til að fullvinna sjávarafurðir og flytja út sem skyndirétti. Niðurstaða muni liggja fyrir í haust og þá verði næstu skref ákveðin.

Það væri ánægjulegt ef Bakkavör reisti hér verksmiðju til að fullvinna sjávarafurðir og flytja út.  Slík verksmiðja myndi skapa álíka mörg störf og eitt álver eða 600-700 störf.  En það læðist að manni sá grunur að þetta sé eingöngu sett fram núna til að styðja við að fá samþykkta nauðasamninga fyrir Exista, sem er aðaleigandi Bakkavarar og fleiri félaga.  En samt gott ef satt reynist.


mbl.is Bakkavör skoðar enn að reisa hér verksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Ef þeir eiga peninga fyrir verksmiðju ætti þá ekki að vera til einhver peningur upp í skuldirnar ?

Jón Aðalsteinn Jónsson, 29.8.2009 kl. 22:20

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég sagði í mínum skrifum að það læddist að manni grunur um að ekki væri ætlunin að reisa þessa verksmiðju, heldu væri þetta sett fram til að fá stuðning við væntanlega nauðasamninga EXISTA, sem er móðurfélag Bakkavarar.

Jakob Falur Kristinsson, 30.8.2009 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband