Vopnafjörður

Framkvæmdum við nýja fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði miðar vel. Að sögn Sveinbjörns Sigmundssonar verksmiðjustjóra eru þær á áætlun. Búið er að steypa um um helming verksmiðjugólfsins og nú í lok vikunnar var von á fyrstu flutningabílunum sem flytja stálgrindina í verksmiðjuhúsið til Vopnafjarðar. Áætlanir gera ráð fyrir því að verksmiðjan verði komin í fullan rekstur í byrjun næsta árs.

Það er þá eins gott að einhver loðnuveiði verði leyfð á næstu vertíð, svo þetta komi til með að skila einhverjum arði.


mbl.is Mjölsverksmiðjan á Vopnafirði á áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég hélt það væru nóg af mjöl verksmiðjum á Íslandi sem væru verkefnalaus, tilhvers önnur?

Rafn 30.8.2009 kl. 18:09

2 identicon

það er verksmiðja á vopnafirði það er bara verið að byggja nýja til að auka afköstin, kynna sér aðeins málið áður en maður bullar

G.Óli 30.8.2009 kl. 18:38

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sælir

Hb Grandi er rekið í Reykjavík, Akranesi og Vopnafirði. Þeir mega ekki hafa loðnuverksmiðju lengur í Reykjavík og þess vegna eru þeir að færa allt yfir til Vopnafjarðar. Við erum með verksmiðju sem er verið að endurnýja og byggja nýja verksmiðju til viðbótar fyrir neðan þá gömlu.

Guð veri með ykkur

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.8.2009 kl. 00:36

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þannig að hin svokallaða "PENINGALYKT" sem pirraði fólk í Reykjavík svo mjög, er í lagi á Vopnafirði og Akranesi.

Jakob Falur Kristinsson, 31.8.2009 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband