Hótaði starfsfólki

Ölvaður karlmaður var með hótanir við starfsfólk Kaupþings í Hamraborg í morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki fengust upplýsingar um hvað manninum gekk til. Var maðurinn á brott þegar lögregla kom á vettvang en náðist skömmu síðar. Var hann fluttur á lögreglustöð þar sem rætt er við manninn.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er ekki vitað hvað manninum gekk til.  Því er ekki hægt að kalla þetta tilraun til bankaráns.  Líklegt er að manngreyið hafi tapað peningum á Kaupþingi.

Annars vekur það furðu mína að Kaupþing skuli enn vera með útibú erlendis, því það var tekið skýrt fram við endurreisn bankanna að þeir störfuðu aðeins á Innanlandsmarkaði.

Er sama vitleysan að fara af stað aftur, með útrás?


mbl.is Hótaði starfsfólki í Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann

Hvar er Kaupþing með útibú erlendis?

Jóhann, 8.9.2009 kl. 10:42

2 Smámynd: Sigurjón Sveinsson

Ertu kannski að rugla saman gamla Kaupþingi og Nýja?

Sigurjón Sveinsson, 8.9.2009 kl. 11:20

3 identicon

Grunar að það sé verið að ruglast á frúnni í Hamraborg og frúnni í Hamborg...... báðar eru víst gjafmildar í meira lagi

Einar 8.9.2009 kl. 11:24

4 identicon

Samkvæmt upplýsingum af internetinu er Kaupþing með útibú í Bandaríkjunum, Bretlandi, í Belgíu, Lúxemburg, á norðurlöndunum og í Sviss. Ég held að ég hafi ekki gleymt neinu.

Elvar 8.9.2009 kl. 11:32

5 identicon

ég veit ekki til þess að það teljist til útrásar að opna útibú í Hamraborg í Kópavogi.

Arnór 8.9.2009 kl. 11:42

6 identicon

Það er útibú hérna í Hamraborg í Kópavogi sem mig grunar að fréttin vísi í en ekki Hamborg Þýskalandi eins og mig grunar að þú hafir kannski ruglast á ;)

Kristín Björnsdóttir 8.9.2009 kl. 14:30

7 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já ég ruglaðist á þessum tveimur nöfnum.

Jakob Falur Kristinsson, 8.9.2009 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband