VG

Á félagsfundi Vinstri grænna í Reykjavík í gærkvöldi var samþykkt ályktun þar sem fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku eru fordæmdar. Er skorað á borgarstjórn að hafna samningi Magma Energy við Orkuveituna um kaup á hlutnum.

Alltaf eru Vinstri grænir saman við sig þegar kemur að nýtingu orkuauðlinda.  Hvað vill þetta fólk gera við okkar auðlindir?  Þeir vilja ekki álver heldur bara eitthvað annað. 

En hvað er þetta annað?


mbl.is Skora á borgarstjórn að hafna samningi við Magma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er heila málið, þeir vilja bara eitthvað annað en vita ekki hvað það er.

Jóhann Elíasson, 8.9.2009 kl. 10:43

2 identicon

Var ekki búið að úrskurða fyrir dómi fyrir einhverjum mánuðum síðan að Orkuveitan YRÐI að selja?

Hvar er ríkið búið að vera alla þessa mánuði?

Ólafur I Hrólfsson 8.9.2009 kl. 10:49

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alveg rétt að það var búið að kveða upp dóm um að OR mætti ekki eiga svona stóran hlut í öðru orkufyrirtæki, vegna samkeppnissjónarmiða  Því gat OR ekkert gert nema að selja og auðvitað er þeim aðila selt sem vill kaupa á góðu verði.

Hvað ríkisvaldið er búið að vera alla þessa mánuði, veit ekki nokkur maður, ekki einu sinni sjálfir ráðherrarnir.

Jakob Falur Kristinsson, 8.9.2009 kl. 15:23

4 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Þetta er plott sem var sett að stað fyrir mörgum árum síðan. Nánast skuldlaus fyrirtæki er búið að spiltta upp í búta, hækka taxta sem síðan á svo að einka"vina"væða. Viðskiptafræði 101 segir að það er ekkert eins gott og algjör einokun. Um að gera að koma verðmætum eignum sem hraðast í hendur á útvöldum.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 8.9.2009 kl. 21:31

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er sjálfsagt rétt hjá þér, Pétur.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2009 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband