Þórsmörk

Gríðarlegir vatnavextir eru í ám á leiðinni inn í Þórsmörk og segir Ragnheiður Hauksdóttir, staðarhaldari í Húsadal að allir lækir séu eins og stórfljót. Varar hún fólk við að fara inn í Þórsmörk í dag án þess að hafa samband við skálaverði þar áður en lagt er af stað enda ófært í augnablikinu.

Ætli þetta verði ekki hvatning fyrir eigendur torfærujeppa til að sína hvað þeirra bílar geta komist langt, þótt að sagt sé að ófært er í Þórsmörk.


mbl.is „Allir lækir eins og stórfljót"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei Jakob

Menn með viti gera það ekki, það fer engin oftar yfir Krossá en hann þarf, þannig er það nú bara. Og sem betur fer eru langflesstir eigendur stórra jeppa þannig.

En það er eins og í öðru það leynist misjafn sauður í mörgu fé.

Vilbogi Magnús Einarsson 11.9.2009 kl. 12:25

2 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Það hafa margir farið í "matcho"-keppni við Krossá og hinar árnar á leiðinni inn í mörk og beðið lægri hlut.  Það mun halda áfram en vonandi tekst mönnum að ná niðurstöðu án þess að slasa sig þótt kostnaðurinn liggi oft á hundruðum þúsunda í skemmdum á bílum þá er það líka það sem menn þurfa til að sjá að árnar vinna alltaf sé ekki komið fram við þær af tilhlíðilegri virðingu.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 11.9.2009 kl. 17:13

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er einmitt þannig, að misjafn sauður leynist oft í mörgu fé.  Einnig er ég sammála Sigurði um það sem hann skrifar.

Jakob Falur Kristinsson, 11.9.2009 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband