Vísitalan

Flóknir útreikningar liggja að baki vísitölu neysluverðs. Þar sem vísitalan er mælitæki á verðlagsþróun í landinu eiga landsmenn gríðarmikið undir því að þessir útreikningar séu réttir.

Það ætti að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölugrunninum og hafa þetta eins og í öðrum löndum.  Þar sem húsnæðisliðurinn er ekki hafður með.  Þetta er mjög slæmt fyrir Ísland, þar sem flestir eiga eigið húsnæði og leigumarkaður lítill.  En t.d. á Norðurlöndunum er leigumarkaðurinn mjög stór.


mbl.is Mælitæki sem fjölmargt mæðir á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En?  Ef húsnæðisliðurinn yrði tekin út þá myndi það hækka verðbólgu og þar með höfuðstóla lána enn meira en komið er?  Það að taka húsnæðisliðinn út hefði kannski átt við áður en fasteignaverð rauk upp, ég man eftir Pétri Blöndal að stinga upp á þessu á sínum tíma.  En ekki í dag. Það yrði vægast sagt mjög óréttlátt, nema að á móti kæmi að vísitölunni yrði einfaldlega kippt úr sambandi, sem eru því miður littlar líkur á að gerist.

Þórður Magnússon 16.9.2009 kl. 13:17

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég held að þetta virki öfugt, þannig að ef húsnæðisliðurinn yrði tekin út þá lækkaði verðbólgan, þar sem þessi liður hefur svo mikið vægi í vísitölugrunninum.  Núna er verð á húsnæði að hækka á milli mánaða, þótt í raun hafi það lækkað.  Þessu veldur svokallaðir makaskiptasamningar þar sem verð er alltaf haft hærra en í frjálsum viðskiptum.  Ég er annars sammála þér að best væri að taka vísitöluna úr sambandi.

Jakob Falur Kristinsson, 16.9.2009 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband