Vildi verða formaður

Hinn 22. janúar síðastliðinn skýrði Bjarni Benediktsson alþingismaður Geir H. Haarde formanni Sjálfstæðisflokksins frá því að hann íhugaði að gefa kost á sér við formannskjör á landsfundi, sem þá stóð fyrir dyrum.

Þarna kemur skýringin af hverju Geir H. Haarde ákvað að draga sig í hlé frá stjórnmálum og Bjarni var kosinn formaður á þessum landsfundi.  En því miður hefur Bjarni ekki staðið undir þeim væntingum sem Sjálfstæðismenn gerðu til hans.  Hann er litlaus, sem þingmaður í stjórnarandstöðu og væri því ekki hæfur í ríkisstjórn.


mbl.is Bjarni ætlaði í formannsframboð gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Oddgeir Einarsson

Hvað hefur litadýrð manna að gera með hæfi þeirra í ríkisstjórn? Hefði ríkisstjórn litríkra manna tekist betur en raun ber vitni hjá þessari ríkisstjórn að standa vörð um hagsmuni Íslands? Skil reyndar áhuga þinn á litadýrð manna vel í ljósi þess að þú ert nýlega genginn úr Frjálslynda flokknum. 

Oddgeir Einarsson, 22.10.2009 kl. 10:22

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef engan áhuga á litadýrð manna eða Bjarna Benediktssonar, ég gekk í Samfylkinguna og styð núverandi ríkisstjórn.

Jakob Falur Kristinsson, 23.10.2009 kl. 03:51

3 Smámynd: Oddgeir Einarsson

Þú talaðir um að litleysi manns leiddi til þess að hann væri óhæfur í ríkisstjórn.

Oddgeir Einarsson, 23.10.2009 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband