Bandaríkin

Bandaríska fjármálaeftirlitið lokaði í gær sjö bönkum, þar á meðal þremur þremur litlum bönkum í Flórída. Eru þar með orðnir yfir eitthundrað bankarnir sem hrunið hafa í Bandaríkjunum af völdum fjármálakreppunnar.

Það er víðar en á Íslandi, sem bankar komast í þrot.  En sá er munurinn að hér á landi er sama fólkið og kom bönkunum í þrot sett í ábyrgðastöður hjá endurreistum bönkum, svo vitleysan geti haldið áfram óhindrað.


mbl.is Yfir 100 bankar í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bandaríski innstæðutryggingasjóðurinn (FDIC) er kominn langleiðina í gjaldþrot, alveg eins og sá íslenski, og þarf bráðlega að endurfjármagna sig með gríðarlegri lántöku úr ríkissjóði, alveg eins og sá íslenski. Það er margt mjög líkt með bankahruninu hérna og í Bandaríkjunum, eini munurinn er að þar vestra hafa menn nú þegar varið 700 billjón dollurum í að seinka hinu óhjákvæmilega í meira en heilt ár, en í báðum tilvikum eru það samt skattgreiðendur sem eru látnir borga brúsann fyrir óráðsíu bankamanna.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.10.2009 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband