Greitt eðlilega

Samkvæmt nýrri skýrslu Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika er greitt með eðlilegum hætti af 85-90% allra fasteignalána í krónum. Um er að ræða bráðabirgðatölur en Seðlabankinn vinnur nú að því að afla frekari upplýsinga hjá viðskiptabönkum og fjármálafyrirtækjum um stöðu mála.

Var þá öll vandamálin með húsnæðislánin bara loftbóla og vandi heimilanna enginn eða eins og Þór Saari, fullyrðir að flest vandamál heimilanna séu vegna bílalána og hlutabréfabrasks og stjórnlausri eyðslu í vitleysu.


mbl.is Greitt með eðlilegum hætti af meginþorra íbúðalána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Jakob, segðu mér hvað kemur út þegar þú dregur 5 + 7 + 9 frá 100.  Færðu 90, 85 eða 79?  Ég fæ 79.  Hvernig geta menn sett fram svona villu í útreikningum?  Greiðslujöfnun er ekki að "greiða með eðlilegum hætti".  Frysting er ekki að "greiða með eðlilegum hætti".  Og vanskil eru það örugglega ekki.  Nú frysting er ekki greiðslujöfnun og fryst lán geta ekki verið í vanskilum.  Ég er eiginlega bit yfir þessum útreikningi.  Síðan sést mönnum yfir að þetta eru fasteignalán í krónum.  Sambærilegar tölur fyrir gengistryggð lán eru 20, 15 og 20, þ.e. einungis er greitt "með eðlilegum hætti" af 45% gengistryggðra lána.

Vandinn er sem sagt miklu stærri, en þarna er gefið í skyn.

Marinó G. Njálsson, 26.10.2009 kl. 17:15

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nú er þetta svona sem þeir finna þetta út?  Þá er bara verið að villa um fyrir fólki en ekki segja hver raunverulega staðan er.  Þetta er fáránlegt.

Jakob Falur Kristinsson, 27.10.2009 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband