Ein skoðun leyfð

Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar, segir að með aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær staðfesti Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, að bannað sé að hafa aðrar skoðanir á kjaramálum en hann og hans fáu stuðningsmenn.

Þetta er nú full mikil einföldun hjá Aðalsteini, því að á þingi ASÍ fyrir stuttu voru miklar og fjörugar umræður og margar skoðanir á lofti.  Hinsvegar  var Aðalsteinn, settur af í einhverri nefnd, sem hann hafði verið lengi í og er sennilega fúll út í Gylfa þess vegna.  Af hverju segir Aðalsteinn ekki hreint út hvað veldur hans óánægju.  Frekar en að fara eins og köttur umhverfis heitan graut og skeytir skapi sínu á Gylfa.


mbl.is Segir að ólíkar skoðanir séu bannaðar innan ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Það var annar aðili kosinn formaður Matvælasviðs sem hann hafði óskað eftir að gegna lengur.. Ég held að það sé aðalástæðan. En hvers vegna svo var og engin mótframboð komu við þetta veit ég ekki..Það lá því fyrir SGS þessi eina tillaga sem var samþykkt.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 29.10.2009 kl. 09:57

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Var ekki ástæðan sú að það þótti rétt að breyta til.  Það er aldrei gott ef einhverjir telja sig eiga ákveðin embætti í stórri fjöldahreyfingu eins og ASÍ er.

Jakob Falur Kristinsson, 29.10.2009 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband