Fjármálaeftirlitið

Seðlabankinn hefur vísað til Fjármálaeftirlitsins um 20 málum þar sem grunur leikur á að lög um gjaldeyrishöft hafi verið brotin. Fleiri mál eru til skoðunar í Seðlabankanum. Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að brot á reglunum sé verið að veikja krónuna og tefja lækkun vaxta.

Hvað verður svo næsta skref, mun Fjármálaeftirlitið reyna að fá þessa aðila ákærða?  Ef allt gengur eins og hingað til verður ekkert gert og þessu stungið niður í skúffu og látið fyrnast þar. Það er vitað að mörg stór útflutningsfyrirtæki fóru framhjá þessum reglum og skiluðu aldrei gjaldeyrir til Seðlabanka Íslands.  Þar sem um er að ræða þekkt nöfn úr viðskiptalífinu er að ræða má ekki styggja þessa menn.  Það er að styttast í sveitarstjórnakosningar og nú þurfa flestir flokkar á þessum fyrirtækjum að halda til að greiða í sína kosningasjóði, sem fyrirtækin gerðu ekki ef þau yrðu ákærð núna.


mbl.is Hafa vísað 20 málum til FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband