Brandari dagsins

Þá er það aftur hann Snorri karlinn.  Á þeim árum er Snorri stundaði bæjarvinnu, stíflaðist nýfrágengin skólplögn frá skólabyggingu staðarins.  Var honum falið að finna stífluna og lagfæra frárennslið.  Eftir að hafa grafið sig niður á lögnina kom í ljós að uppsláttarborð hafði lokað skolprörinu.  Þar sem Snorri var orðinn sveittur eftir gröftinn þá fór hann úr jakkanum, stakk skóflunni niður í holubotninn og hengdi jakkann á skófluskaftið.  Kippti síðan borðinu frá rörendanum og skipti þá engum togum að út úr rörinu ruddist nokkurra daga samansafn af úrgangi líkamans.  Átti Snorri fótum fjör að launa er hann hentist upp úr holunni.  Á þessu augnabliki kölluðu vinnufélagar Snorra til hans og sögðu kominn væri kaffi tími.  Jánkaði Snorri því en fór að bjástra við að ná jakkanum af skófluskaftinu.

"Hvern fjandann ertu að gera maður?" spurðu vinnufélagarnir.

"Sérðu ekki að jakkinn er á kafi í mannaskít og ónýtur?"

"Sé ég víst" svaraði Snorri. 

"En nestið mitt er í jakkavasanum."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

oj, nestið...............

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.11.2009 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband